Þá er maður mættur í bloggheiminn!

Jæja, þá er loksins komið að því! Staðan í þessu þjóðfélagi er orðin slík að maður getur ekki lengur orða bundist. Ég vonast til að geta lagt eitthvað af viti til umræðunnar af og til en ætla líka í framtíðinni að nota þetta blogg til að miðla fréttum og myndum til ættingja og vina erlendis.

Ég vil samt byrja á því að óska formönnum ríkisstjórnarflokkanna gæfu og góðs bata. Þetta er ófremdarástand á öllum vígstöðvum hjá þessu fólki og ég finn til með þeim, þótt ég styðji ekki ríkisstjórnina undir núverandi kringumstæðum.


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég fæ að vera sú fyrsta ti að óska þér til hamingju með síðuna og að skrifa í gestabókina! Láttu nú heyra í þér stelpa og skafðu ekki utan af því!

luv-inga

Inga Rósa (IP-tala skráð) 23.1.2009 kl. 19:48

2 Smámynd: Erla Einarsdóttir

Takk dúllan mín. Vona að ég geri mig ekki að fífli!! hehe. Nei, án gríns, maður verður að vera óhræddur við að segja skoðanir sínar! Knús til þín, sjáumst eftir viku í stuði ;c)

Erla Einarsdóttir, 23.1.2009 kl. 20:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband