Flott tækifæri til atvinnusköpunar!

Þarna er þetta líka fína atvinnutækifæri lagt upp í hendurnar á okkur bara si svona. Tækifæri til að stofna nýtt sprotafyrirtæki, gjaldeyrir inn í landið og allt maður. Lýsi eftir fólki til að stofna nýjar íslenskar "Þjálfunarbúðir fyrir breska mótmælendur". Við gætum meira að segja kennt þeim að prjóna lopapeysur úr íslenskri ull í leiðinni svo þeir drepist nú ekki úr kulda í kreppunni. Svo seljum við þeim ullina í leiðinni, ennþá meiri gjaldeyrir og meiri atvinna fyrir bændur.

Segið svo að maður fái engar hugmyndir! Wink


mbl.is Íslensk mótmæli vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband