Ég mótmæli!!

Ef ég byggi í Reykjavík væri ég að mótmæla núna, fyrir utan dómsmálaráðuneytið og/eða hæstarétt!

Það er náttúrulega bilun að maður skuli fá 2 og 1/2 árs fangelsisdóm fyrir að eyðileggja líf barnsins síns. Svona menn á að loka inni og týna svo lyklunum! Dómar vegna kynferðisbrota eru BRANDARI hér á landi. Ég vil fá að sjá þessi mál á stefnuskrám flokka fyrir næstu kosningar, þetta er ekki líðandi í landinu okkar. Ég verð alltaf jafn hissa þegar ég sé fréttir um dóma vegna svona mála en nú er mér bara nóg boðið. Líf og framtíð lítillar stúlku hefur verið lagt í rúst og "hryðjuverkamaðurinn" sleppur út eftir 2 og 1/2 ár!

ÞETTA ER EKKI Í LAGI!

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/02/10/braut_gegn_barnungri_dottur_sinni/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband