Hvernig á að þekkja heilablæðingu?

Ég fékk tölvupóst varðandi þetta nýlega og set hann hér. Þetta er eitthvað sem allir þyrftu að vita.

Það væri gott ef allir vissu þetta .............
Slag / Heilablóðfall / Blóðtappi

Það tekur þig aðeins rúmlega eina mínútu að lesa þetta:

TUNGAN er fjórða einkennið til að greina Slag / Heilablóðfall / Blóðtappa

Haft er eftir taugasérfræðingi að, fái hann fórnarlamb slags til meðferðar
innan þriggja tíma, sé hægt að snúa þróun áfallsins við og bæta algerlega

allan skaða sem það hefur valdið. Að hans sögn er galdurinn í því fólginn

að þekkja einkennin – greina þau og veita sjúklingnum viðeigandi læknishjálp
innan þriggja klukkustunda – sem er ekki einfalt.
 
 

Stundum er erfitt að átta sig á að um slag sé að ræða. Því miður hefur
sofandaháttur við þessar kringumstæður grafalvarlegar afleiðingar.
Sjúklingar geta orðið fyrir alvarlegum heilaskaða ef nærstaddir átta sig
ekki á að um einkenni slags er að ræða.


Að þekkja einkenni slags:


Notið nú gáfurnar sem ykkur hlotnuðust til að Lesa og Læra:

Að sögn lækna, geta leikmenn borið kennsl á slag, með því að kanna
þrjú ( núna fjögur ) einföld atriði:


Þið getið lært að tengja fyrstu 5 stafina í BLóðTappi við einkennin fjögur


B L óð T appi

Brosa Lyfta (óð) Tala + Tunga


Á ensku er bent á læra að tengja fyrstu 3 stafina í STRoke
S = smile T = talk R = raise both arms (og bæta núna Tounge við)


B biðjið hann / hana að BROSA

L biðjið hann / hana að LYFTA báðum handleggjum

T biðjið hann / hana að TALA og segja einfalda setningu að viti
t.d. að lýsa veðrinu

Núna má bæta TUNGA við –
T biðjið hann / hana að reka TUNGUNA – beint – út úr sér

því ef tungan er bogin eða leitar út í annað munnvikið er það líka vísbending um slag.

Ef manneskjan á í erfiðleikum með EITTHVERT EITT þessara atriða þarf
að hringja strax í Neyðarlínuna og lýsa einkennunum.

Að kunna þetta getur bjargað mannslífi.

 
mbl.is Hefði getað bjargað Richardson
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Þetta er þörf lesning, takk fyrir að setja þetta á bloggið. Það sprakk æðagúlpur í mínu höfði 1997 og ég var að reka tunguna úr úr mér framan í allt og alla í 2 til 3 vikur á eftir, sveifla handleggjum, kreysta hendur og spyrna í lófa.  Sem betur fer náði ég mér vel, en það eru ekki allti svo heppnir.

Hólmfríður Bjarnadóttir, 21.3.2009 kl. 02:12

2 Smámynd: Erla Einarsdóttir

Það er gott að þú náðir þér Hólmfríður. Það getur skipt ÖLLU máli að nærstaddir þekki einkennin og sjái til þess að koma viðkomandi tafarlaust undir læknishendur. Hef heyrt sögu af manneskju sem var talin drukkin, þegar hún var í rauninni að upplifa blæðingu í heila, og var látin afskiptalaus þar til allt var um seinan.

Erla Einarsdóttir, 27.3.2009 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband